20.50.32 Miðlun = nám


ECTS: 6 einingar
Kennslumisseri: Haust
Við vitum að miðlunartækni nýtist til að færa okkur efni (sbr. sjónvarpið) eða varðveita það (t.d. á geisladiski). Okkur er ekki eins tamt að hugsa um miðlun eða dagskrárgerð sem aðferð við nám. Á námskeiðinu er fjallað um þá aðferð. Markmið: Að þátttakendur - kynnist kostum þess að nemendur noti margs konar miðlunaraðferðir - myndmiðlun, hljóðmiðlun, margmiðlun - við nám í ýmsum greinum - öðlist færni í að undirbúa miðlunarverkefni, tileinki sér kennsluaðferðir sem stuðla að miðlalæsi nemenda, þ.e. hæfni þeirra til að nota miðla á gagnrýninn hátt. Viðfangsefni: Þátttakendur kynnast aðferðum við hugmyndavinnu, útfærslu og framsetningu efnis. Þeir greina fjölmiðlaefni af ýmsu tagi - svo sem viðtöl og auglýsingar - til að glöggva sig á verklagi fjölmiðlafólks og hlutverki fjölmiðla í samfélaginu. Jafnframt læra þeir á hljóðvinnsluforrit, gera tilraunir með hljóðrænt efni og vinna saman að gerð útvarpsþáttar. Vinnulag: Námið er byggt á samræðum og samvinnuverkefnum og því skiptir virkni og tímasókn nemenda miklu máli. vær staðlotur eru hjá fjarnemum.

Umsjónarkennari: Stefán Jökulsson